Innlent

Þing­lok strax eftir helgina

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Forseti Alþingis segir stefnt að þinglokum á mánudaginn en annasamir dagar eru fram undan.
Forseti Alþingis segir stefnt að þinglokum á mánudaginn en annasamir dagar eru fram undan. Vísir/Vilhelm

Birgir Ármannsson forseti Alþingis segir stefnt að þinglokum á mánudaginn en annasamir dagar eru fram undan.

Rétt rúmar tvær vikur eru nú þar til gengið verður til kosninga og er allt kapp lagt á að ljúka störfum Alþingis sem fyrst. Birgir Ármannsson forseti Alþingis fundaði í morgun með formönnum flokkanna.

„Þar voru við að ræða meðal annars þennan ramma um starfið. Það er að segja við gerðum ráð fyrir annarri umræðu fjárlaga í dag og þriðju umræðu á mánudag og stefnum að loka afgreiðslu á mánudaginn.“

Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis hefur lagt til að heimild til að skattfrjálsrar ráðstöfunar á viðbótargjaldi til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól lána verði framlengd út árið 2025. Þá hefur hann einnig lagt til að í stað kílómetragjalds, sem ekki verði komið á um áramótin, verði önnur gjöld hækkuð um 2,5 prósent. Birgir segir að þetta sé á meðal þess sem verði rætt á lokasprettinum. Þingfundur hófst klukkan hálf ellefu.

„Við erum í dag að fjalla um mál sem tengjast fjárlögum að mestu leyti. Það eru mál sem efnahags- og viðskiptanefnd hefur verið að klára út og varðar tekjuhlið fjárlaga. Það geta verið mismunandi skoðanir um einhver einstök atriði en ég held að það sé ágæt samstaða að ljúka þessum málum fjárlögum, fjárlagatengdum málum og dagsetningarmálum sem kalla á afgreiðslu fyrir kosningar. Þannig við höfum getað verið að vinna þetta svona nokkurn veginn út samkvæmt plani. Þó við séum kannski einum til tveimur dögum seinna á ferðinni heldur en við gerðum ráð fyrir þegar við lögðum af stað í október með þetta.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×