Lífið

Dóri DNA og Magnea vilja stækka við sig og selja á Suðurgötu

Halldór er margt til lista lagt, svo sem að taka íbúðina í sína í gegn.
Halldór er margt til lista lagt, svo sem að taka íbúðina í sína í gegn.
Fjöllistamaðurinn Halldór „DNA“ Halldórsson og eiginkona hans Magnea Guðmundsdóttir hafa sett íbúð sína við Suðurgötu á sölu.

Um er að ræða 4 herbergja, 91,5 fermetra íbúð á fyrstu hæð og er uppsett verð 47,9 milljónir króna.

Dóri greinir frá því á Twitter í dag að þau hjónakornin hafi ákveðið að stækka við sig eftir að sonur þeirra Flosi kom í heiminn.

Fram kemur á fasteignavef Vísis að íbúðin skiptist á eftirfarandi hátt.

Forstofa sem tengir önnur rými íbúðarinnar, korkflísar á gólfi.

Hjónaherbergi, fatahirsla, korkflísar á gólfi.

Barnaherbergi, korkflísar á gólfi.

Baðherbergi, flísar á veggjum og gólfi, sturtubaðkar.

Tvær stofur með stafaparketi.

Eldhús; korkflísar á gólfi og flísar á veggjum. Útgengt á svalir sem snúa inn í garðinn.

Myndir af íbúðinni má sjá hér að neðan.

LIND
LIND
LIND
LIND
LIND
LIND
Nánari upplýsingar og fleiri myndir má nálgast með því að smella hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.