Fyrrverandi rússneskur þingmaður skotinn í Kænugarði Samúel Karl Ólason skrifar 23. mars 2017 12:10 Rússneski þingmaðurinn Denis Voronenkov var skotinn til bana í Kænugarði í dag. Vísir/AFP
Fyrrverandi rússneski þingmaðurinn Denis Voronenkov var skotinn til bana í Kænugarði í dag. Lögreglan segir hann hafa verið skotinn tvisvar sinnum í höfuðið við inngang að hóteli í borginni, en hann var á leið á fund með öðrum fyrrverandi þingmanni.Voronenkov var áður meðlimur í Kommúnistaflokki Rússlands og þingmaður í neðri deild þingsins. Hann flutti til Úkraínu í fyrra ásamt konu sinni Maria Maksakova, sem einnig var þingmaður.Samkvæmt frétt Guardian segist Voronenkov hafa flutt vegna áreitis öryggisstofnana Rússlands og hafði hann afsalað sér rússneskum ríkisborgararétti sínum.Voronenkov hafði gagnrýnt Vladimir Putin, forseta Rússlands, eftir að hann flutti frá Rússlandi og sagt opinberlega að það hefðu verið mistök að innlima Krímskaga. Hann var á leið á fund með Ilya Ponomarev, sem einnig hafði flutt frá Rússlandi.Samkvæmt Kyivpost særði morðinginn lífvörð Voronenkov, sem tókst þó einnig að særa morðingjann. Báðir hafa verið fluttir á sjúkrahús. Uppfært 14:10: Morðinginn lést á sjúkrahúsi. Yfirvöld í Úkraínu hafa kennt Rússum um morðið og segja að um „hryðjuverk ríkis“ sé að ræða. Sjálfur sagði Voronenkov í viðtali í febrúar að fólk í rússnesku sjónvarpi hefði kallað eftir því að honum yrði ráðinn bani. Yfirvöld í Rússlandi segja ásakanir um að þeir hafi látið myrða Voronenkov vera fáránlegar, samkvæmt AFP fréttaveitunni.Vert er að vara lesendur við þessu myndbandi frá vettvangi í dag.
Mest lesið Sagður hafa nauðgað fatlaðri konu og látið son hennar horfa á Innlent Tveir góðkunningjar flúðu lögregluna á hlaupahjóli Innlent Albert ákærður fyrir kynferðisbrot Innlent Fatasöfnunargámar Rauða krossins fjarlægðir á næstu dögum Innlent Lenti með höfuðið á malbikinu þegar maður tók fram úr bílalest Innlent Fimm grímuklæddir brutu upp útidyrahurð Innlent Enn slasast tugir í ókyrrð Erlent „Enn fólk að birtast sem hafði ekki hugmynd um þetta“ Innlent „Hefðbundið eftirlit er ekki viðhaft að ástæðulausu“ Innlent Mögulega komnir úr landi en ekki ástæða til að lýsa eftir þeim Innlent Fleiri fréttir Ákvörðun um refsingu Trump frestað 87 talin af vegna troðnings Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Enn slasast tugir í ókyrrð Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Í höndum Macron að koma í veg fyrir stórsigur Le Pen Hæstiréttur segir Trump njóta friðhelgi að hluta Einn helsti rithöfundur Albaníu er allur Strangrúaðir mótmæltu herskyldu Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Franska þjóðfylkingin leiðir samkvæmt útgönguspám Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám „Fólk er einfaldlega hrætt“ Leitin að Slater blásin af Frakkar ganga að kjörborðinu Útlitið svart hjá Macron fyrir kosningar á morgun Bandarískum kjósendum líst illa á stöðuna í forsetaslagnum Ungur maður tekinn af lífi fyrir að hlusta á K-pop í Norður-Kóreu Efna til allsherjarleitar að Slater Mossack og Fonseca heitinn sýknaðir Segir Biden „algjörlega vanhæfan“ „Ég veit að ég er ekki ungur maður“ „Fíaskó næturinnar“ gæti kallað á nýjan frambjóðanda Ævilangt fangelsi fyrir morðið og nauðganirnar Biden augljóslega þyngdur af ellibelgnum Sakfelldur fyrir að myrða Emilie Meng Sjá meira