Sharapova ætlar að spila aftur eftir lyfjabannið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. janúar 2017 13:00 Maria Sharapova. Vísir/Getty
Rússneska tenniskonan Maria Sharpaova hefur tilkynnt að hún muni taka fram tennisspaðann á nýjan leik þegar hún hefur lokið fimmtán mánaða keppnisbanni frá íþróttinni í apríl. Sharapova var dæmd í tveggja ára bann eftir að hún féll á lyfjaprófi á Opna ástralska meistaramótinu í tennis, fyrir tæpu ári síðan. Lyfið meldóníum uppgötvaðist í sýni hennar en í ljós kom að það hefði verið notað í miklum mæli, sérstaklega hjá íþróttafólki frá Rússlandi og öðrum löndum í austurhluta Evrópu. Hún áfrýjaði dómnum í október og var bannið stytt í fimmtán mánuði. Það þýðir að henni verður frjáls að keppa á nýjan leik í apríl. Sjá einnig: Bann Sharapovu stytt Hennar fyrsta mót verður Porsche Grand Prix-mótið í Stuttgart en hún bar sigur úr því móti þrju ár í röð, frá 2012 til 2014. Hún fær undanþágu til að keppa á mótinu þar sem að hún er ekki á styrkleikalista Alþjóðatennissambandsins sem stendur. „Ég gæti ekki verið ánægðari með að fá minn fyrsta leik á einu af mínu uppáhaldsmótum. Ég get ekki beðið eftir að hitta allt mitt góða stuðningsfólk aftur og gera aftur það sem ég elska að gera.“ Sjá einnig: Hvað er meldóníum? Sharapova viðurkenndi að hafa notað meldóníum í langan tíma en vissi ekki að það hefði verið sett á bannlista í upphafi árs 2016.
Tennis Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Látnir æfa á jóladag Enski boltinn Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Fótbolti Gísli fyrr heim í frí eftir árásina í Magdeburg Handbolti Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu Enski boltinn „Allt er svo erfitt“ Enski boltinn Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Sport Algjört áfall fyrir Arsenal og Saka Enski boltinn Héldu í hefðina og köstuðu þúsundum bangsa inn á völlinn Fótbolti Fleiri fréttir Dauðþreyttur á sömu spurningum: „Fólk heldur að það sé hægt að ýta á takka“ Algjört áfall fyrir Arsenal og Saka „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Gísli fyrr heim í frí eftir árásina í Magdeburg Héldu í hefðina og köstuðu þúsundum bangsa inn á völlinn Sagði frá eigin lyfjamisnotkun og er kominn í bann Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Dagskráin í dag: Það er pílan Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Cullen stormaði út af blaðamannafundi White og Littler mætast í 16-manna úrslitum Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Martin og félagar burstuðu botnslaginn Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Sjá meira