Fótbolti

Skorar örar í Evrópu en Gerd Müller, Puskas og Messi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lífið brosir við Radamel Falcao á ný.
Lífið brosir við Radamel Falcao á ný. Vísir/Getty
Kólumbíumaðurinn Radamel Falcao skoraði tvennu í Meistaradeildinni í gærkvöldi en þetta voru fyrstu mörk hans í Meistaradeildinni í sex ár.

Radamel Falcao skoraði mörkin í 3-0 sigri Mónakó-liðsins á CSKA Moskvu en sigurinn kom liðinu í toppsæti deildarinnar. Mónakó er með tvöfalt fleiri stig (8) en Tottenham (4) sem er í þriðja sætinu.

Falcao vakti gríðarlega athygli þegar hann skoraði 18 mörk í 16 leikjum þegar Porto vann Evrópudeildina 2010-11 og 12 mörk í 15 leikjum þegar Atlético Madrid vann Evrópudeildina 2011-12.

Radamel Falcao var seldur frá Atlético Madrid til Mónakó. Franska liðið hefur lánað hann bæði til Manchester United og Chelsea undanfarin tímabil en Kólumbíumaðurinn fann sig engan veginn í enska boltanum.

Eftir tvö afar erfið ár virðist hann hinsvegar búinn að finna skotskóna sína á nýjan leik. Falcao hefur nú skorað 6 mörk í 8 leikjum í öllum keppnum með Mónakó á tímabilinu.

Falcao hefur einnig frábæra tölfræði í Evrópukeppni en hann hefur skorað 42 mörk í 46 leikjum í bæði Meistaradeild og Evrópudeild. Þetta gerir 0,91 mark í hverjum leik sem er betri tölfræði en hjá mestu markaskorum sögunnar.

Spænski tölfræðingurinn Alexis Martín-Tamayo tók þennan lista saman hér fyrir neðan.

Flest mörk í leik í Evrópukeppni:

Radamel Falcao 0,91

Gerd Müller 0.89

Ferenc Puskas 0.88  

Jupp Heynckes 0.80

Alfredo Di Stefano 0.77




Fleiri fréttir

Sjá meira


×