Sanders veitir Clinton stuðning sinn Samúel Karl Ólason skrifar 12. júlí 2016 16:00 Hillary Clinton og Bernie Sanders. Vísir/getty
Bernie Sanders hefur veitt Hillary Clinton stuðning sinn í kosningunni til embættis forseta Bandaríkjanna. Þau hafa átt í viðræðum um stuðning Sanders frá því að ljóst varð að Clinton myndi vinna Sanders í júní. Nú virðast þau hafa sameinast til þess að koma í veg fyrir að tilvondandi frambjóðandi Repúblikana, Donald Trump, verði kosinn forseti. Clinton hefur átt í vandræðum með að ná til ungs fólks í Bandaríkjunum sem veitt hafa Sanders mikinn stuðning. „Þessi kjörbarátta er um þarfir Bandaríkjamanna og að takast á við alvarlega vanda sem við stöndum frammi fyrir. Það er ekki nokkur vafi í mínum huga að, nú þegar við nálgumst nóvember, sé Hillary Clinton langtum besti frambjóðandinn til að gera það,“ er haft eftir Sanders á vef BBC. Hann sagði einnig að öllum ætti að vera ljóst að þau tvö hafi ekki verið sammála um mörg málefni. Hins vegar hefðu þau náð verulega saman á undanförnum vikum. „Við erum að snúa bökum saman til þess að sigra Donald Trump,“ sagði Hillary Clinton.
Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Vaktin: Totur farnar að teygja sig til norðurs Innlent Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Innlent Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Innlent Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Innlent Segir íbúafundinn ekki hafa verið nægilega upplýsandi Innlent „Allt athafnasvæði Bláa lónsins er innan varnargarða“ Innlent Með hundruð kílóa af þýfi heima hjá sér Innlent Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Erlent Tilbúin að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum Innlent Fleiri fréttir Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Leita móður ungabarns sem fannst látið á víðavangi Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn Bolsonaro og félagar kærðir fyrir valdaránstilraun Trump-liðar heita aðgerðum gegn sakamáladómstólnum Útlit fyrir að Scholz leiði flokk sinn til kosninga þrátt fyrir óvinsældir Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Kostnaðurinn við krýningu Karls konungs 13 milljarðar króna Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Gaetz ætlar sér ekki að verða dómsmálaráðherra Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Meina fyrstu trans þingkonunni að fara á kvennaklósettið Fyrsta nærmyndin af stjörnu utan Vetrarbrautarinnar Gefa út handtökuskipun á hendur Netanjahú Fjögur ungmenni nú látin af völdum tréspírans Skutu fyrstu langdrægu skotflauginni að Úkraínu Hugmynd um banana á vegg seldist á 850 milljónir John Prescott fallinn frá Siðanefndin klofin í máli Gaetz en gögn farin að leka Høiby í vikulangt gæsluvarðhald Fara fram á tveggja vikna gæsluvarðhald yfir stjúpsyninum NATO tryggi lykilinnviði eftir ætluð spellvirki í Eystrasalti Hlaut dauðadóm fyrir að eitra fyrir fjórtán vinum með blásýru Hótar að fella stjórnina í skugga „pólitísks dauðadóms“ Mafíuforingi sækist eftir þingsæti í Dyflinni Heitir peningaverðlaunum og lausn þeim sem frelsa gísla Fyrsta trans konan á þingi sætir aðför af hálfu kollega sinna Sjá meira