Valsararnir fjórir í íslenska landsliðinu mæta á Hlíðarenda á morgun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júní 2016 18:30 Eiður Smári Guðjohnsen, Birkir Már Sævarsson, Rúnar Már Sigurjónsson og Ari Frey Skúlason. Mynd/Heimasíða Vals
Krakkarnir í Val fá frábært tækifæri til að hitta fjóra leikmenn íslenska A-landsliðsins í knattspyrnu á morgun fimmtudag. Íslenska landsliðið er að spila við Norðmenn í Osló í kvöld en flýgur síðan heim í fyrramálið og spilar lokaleik sinn við Liechtenstein á mánudaginn. Fjórir leikmenn íslenska liðsins hófu ferilinn sinn í efstu deild með Val að Hlíðarenda en þeir eru nú allir atvinnumenn á Norðurlöndunum. Leikmennirnir eru Eiður Smári Guðjohnsen, Birkir Már Sævarsson, Ari Frey Skúlason og Rúnar Már Sigurjónsson. Valsmenn segja frá heimsókninni á heimasíðu sinni. „Iðkendum í Val gefst því kostur á kveðja kappana, fá eiginhandaráritanir eða myndir af sér með þeim. Þá munu þeir án efa kíkja út á völl og heilsa upp á þá sem eru á æfingu," segir í fréttinni á síðu Vals. Eiður Smári Guðjohnsen spilaði síðast með Val sumarið 1994, Ari Frey Skúlason var síðast með Valsliðinu sumarið 2006, Birkir Már Sævarsson lék síðast með Val 2008, og Rúnar Már Sigurjónsson lék með Val sumarið 2013 áður en hann fór til Sundsvall í Svíþjóð. Eiður Smári Guðjohnsen lék 17 leiki og skoraði 7 mörk með Val í efstu deild, Ari Frey Skúlason var með 1 mark í 11 leikjum, Birkir Már Sævarsson skoraði 2 mörk í 56 leikjum í efstu deild með Val og Rúnar Már Sigurjónsson er þeirra markahæstur með 13 mörk í 70 leikjum með Val í efstu deild.
EM 2016 í Frakklandi Fótbolti Íslenski boltinn Pepsi Max-deild karla Mest lesið Þurfti að biðja allt liðið afsökunar: „Þetta var ekkert illa meint“ Fótbolti Dómari blóðugur eftir slagsmál Sport Lést sex dögum eftir að hafa orðið meistari Sport Strákarnir komnir í úrslit Handbolti Kærkominn sigur City Enski boltinn Grindvíkingar um daginn örlagaríka: „Í fyrsta sinn sem ég missi kúlið“ Körfubolti Ratcliffe áfram með niðurskurðarhnífinn á lofti Enski boltinn Ófarir Spurs halda áfram Enski boltinn Í beinni: West Ham - Liverpool | Enda árið á toppnum en með hversu mikið forskot? Enski boltinn Gamli maðurinn lét Littler svitna Sport Fleiri fréttir Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Yfirlögfræðingur KSÍ verður framkvæmdastjóri Víkings KA-fólk fær sérútgáfu af bókinni Íslensk knattspyrna í ár Mikil sorg hjá Fram-fjölskyldunni Nauðsynlegt og löngu tímabært Stefán Þór Þórðarson í þjálfarastarf hjá Skagamönnum Fyrirliði Selfoss til liðs við Þróttara Vinna að lagningu gervigrass hafin í Vesturbæ „Hef mínar pælingar sem mér finnst gaman að taka áfram“ Blikar kveðja Damir og óska honum góðs gengis í Brúnei Mist Funa komin heim Víkingar seldu Bjarka Björn til Eyja Mætti syni sínum „Ég get ekki beðið að koma aftur til Íslands“ Ef launin væru svo há hefði ég gert fimm ára samning Verður áfram í grænu næsta sumar Arnór ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Eiður Gauti skoraði tvö á Mosfellsbræðurna í fyrsta leik Opnar sig um brjálæðið á Skaganum: Fékk áfall og átti erfitt með svefn Vuk í Fram Bankastarfsmaðurinn sem fór úr 3. deild í KR „Gaman að heyra hann öskra á bakvið mann“ Þungavigtarbikarinn hefst í janúar „Heyrt margar reynslusögur“ Bræðurnir saman í Mosó og Íslandsmeistari mættur Framkvæmdastjóraskipti hjá Val Fyrsta skóflustunga tekin og KR spilar á gervigrasi Sjá meira