Erlent

Ábyrgðin var ekki hjá fótboltaaðdáendunum

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Aðstandendur hinna látnu fagna innilega niðurstöðum rannsóknarinnar, sem lengi hefur verið beðið eftir.
Aðstandendur hinna látnu fagna innilega niðurstöðum rannsóknarinnar, sem lengi hefur verið beðið eftir. Fréttablaðið/EPA

Heilum 27 árum eftir að nærri hundrað manns létu lífið í troðningi á fótboltavelli hefur ítarleg rannsókn leitt í ljós að lögreglan beri meginábyrgðina.

Aðstandendur hinna látnu fögnuðu niðurstöðunni. David Cameron forsætisráðherra segir að þarna hafi fengist opinber staðfesting á því að fótboltaaðdáendurnir, sem voru á vellinum í Sheffield þann 15. apríl árið 1989, hafi verið alsaklausir.

David Cuckenfield var yfirmaður í lögreglunni þegar harmleikurinn á Hillsborough-vellinum varð. Alls létu 96 manns lífið og 766 meiddust.

Cuckenfeld er í úrskurði rannsóknarkviðdóms sagður hafa brugðist skyldu sinni og sýnt af sér vítaverða vanrækslu. Þar með hafi hann gerst sekur um manndráp.

Lögreglan hafi gert margvísleg mistök sem hafi gert ástandið á vellinum hættulegra en ella hefði orðið. Meðal annars hafi lögreglunni ekki tekist að hafa stjórn á mannfjöldanum sem streymdi inn á völlinn. Þá hafi viðbrögð lögreglu og sjúkraliðs verið alltof hæg, ekki síst vegna þess að of seint hafi verið lýst yfir neyðarástandi.

Þá hafi verið gerð alvarleg mistök með því að fresta ekki upphafi leiksins þegar í ljós kom að alvarlegur troðningur var að myndast.

Gagnrýnt er að lögreglan hafi ekki dregið neinn lærdóm af fyrri atburðum, en hættuástand hafi nokkrum sinnum áður myndast á þessum sama leikvangi. Athygli lögreglu og fjölmiðla beindist eingöngu að áhorfendum og sökin sögð liggja hjá fótboltabullum, sem hafi hagað sér með vítaverðum hætti.

„Fólk var á móti okkur. Við höfðum fjölmiðlana á móti okkur og stjórnvöld líka,“ er haft eftir Margaret Aspinall á fréttavef breska ríkisútvarpsins, BBC. „Allt var á móti okkur.“

Aspinall missti átján ára son sinn í troðningnum við Hillsborough-völlinn. Aðstandendur hinna látnu hafa lengi barist fyrir því að atburðurinn yrði rannsakaður ofan í kjölinn.

Á endanum var ákveðið að leggja fjórtán spurningar fyrir níu manna kviðdóm, sem skýrði frá niðurstöðum sínum í gær. Við öllum spurningunum nema einni komst kviðdómurinn að einróma niðurstöðu.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 27. apríl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×