Fótbolti

Luis Suarez má loksins spila aftur með landsliðinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Luis Suarez sekúndum eftir bitið afdrifaríka.
Luis Suarez sekúndum eftir bitið afdrifaríka. Vísir/Getty
Luis Suarez hefur verið óstöðvandi með Barcelona-liðinu á þessu tímabili en Úrúgvæmaðurinn er þegar kominn með 46 mörk í 47 leikjum í öllum keppnum og enn er fullt af leikjum eftir.

Framundan eru hinsvegar  langþráðir landsleikir hjá kappanum og hann viðurkennir það fúslega að hann þurfi að passa upp á spennustigið og taugarnar nú þegar hann spilar sína fyrstu mótsleiki með Úrúgvæ frá HM í Brasilíu 2014.

Luis Suarez beit Ítalann Giorgio Chiellini í frægum leik Úrúgvæ og Ítalíu á HM í Brasilíu í júní 2014 og FIFA dæmdi hann í fjögurra mánaða knattspyrnubann.

Þar með var ekki öll sagan sögð því Suarez var einnig dæmdur í níu landsleikja bann frá mótsleikjum.

Suarez hefur því ekki spilað með landsliði Úrúgvæ í 641 dag. Á þeim tíma hefur hann misst af tapleik á móti Kólumbíu í lokaleik liðsins á HM 2014, hann missti af allri Ameríkukeppninni síðasta sumar og var heldur ekki með í fjórum fyrstu leikjunum í undankeppni HM 2018.

Suarez mátti spila alla vináttulandsleiki á þessum tíma og Úrúgvæ gat því ekki skipulagt fjölda vináttulandsleikja til þess að éta upp bannið hans.  

Úrúgvæ er í öðru sæti á eftir Ekvador í Suður-Ameríku riðlinum í undankeppni HM 2018 en fyrsti leikur Suarez eftir bannið verður á móti Brasilíu á föstudaginn.

Suarez missti af fyrstu mánuðunum sem leikmaður Barcelona en Liverpool seldi hann til Spánar eftir að hann var dæmdur í bannið en féll strax vel inn í leik liðsins þegar hann kom til baka.

Barcelona vann þrennuna á hans fyrstu leiktíð og getur endurtekið leikinn á leiktíð númer tvö.

„Það getur enginn breytt því hvernig ég spila. Ég verð áfram með sama hugarfar, ég mun áfram hlaupa, pressa boltann og rífast inn á vellinum alveg eins og ég geri hjá Barcelona," sagði Luis Suarez við BBC.   

„Ég er samt að reyna að taka gáfulegri ákvarðanir og nýta mér betur þær aðstæður sem lífið færir mér. Ég hef líka unnið í því síðustu vikur að stjórna betur kvíðanum og stilla betur taugarnar," sagði Suarez.  

Luis Suarez hefur skorað 44 mörk í 82 landsleikjum fyrir Úrúgvæ en hann er markahæsti leikmaður landsliðsins frá upphafi með átta mörkum meira en Diego Forlán.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×