Fótbolti

Liverpool og Manchester United mætast í Evrópudeildinni | Sjáið allan dráttinn

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Jürgen Klopp og Louis van Gaal geta mæst í 16 liða úrslitunum.
Jürgen Klopp og Louis van Gaal geta mæst í 16 liða úrslitunum. vísir/getty
Ensku liðin Manchester United og Liverpool drógust saman þegar dregið var í sextán liða úrslit Evrópudeildarinnar í fótbolta í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss í hádeginu í dag.

Leikir Manchester United og Liverpool verða án efa stórleikir sextán liða úrslitanna en fyrri leikurinn fer fram á Anfield í Liverpool en sá síðari á Old Trafford í Manchester.

Þetta ættu að vera góðar fréttir fyrir Louis van Gaal, knattspyrnustjóra Manchester United, sem hefur stýrt United til sigurs í öllum fjórum deildarleikjum sínum á móti Liverpool.

Þetta verður í fyrsta sinn sem þessir miklu erkifjendur mætast í Evrópukeppni og það verða því margir með augun á þessum spennandi slag ensku liðanna.

Hitt enska liðið í pottinum, Tottenham lenti á móti þýska liðinu Borussia Dortmund og fær seinni leikinn á White Hart Lane. Það verða líka frábærar viðureignir.

Birkir Bjarnason og félagar í Basel eiga möguleika á því að spila úrslitaleikinn á heimavelli en þeir drógust á móti spænska liðinu Sevilla sem hefur unnið Evrópudeildina tvö undanfarin ár.

Það verður einn spænskur slagur því Valencia og Athletic Bilbao drógust saman.  

Leikirnir í sextán liða úrslitunum fara fram 10. og 17. mars næstkomandi en 32 liða úrslitin kláruðust í gær. Liðin stefna öll að komast í úrslitaleikinn á St. Jakob-Park leikvanginum í Basel 18. maí.

Liðin sem mætast í sextán liða úrslitum Evrópudeildarinnar:

Shakhtar Donetsk (Úkraínu) - Anderlecht (Belgía)

Basel (Sviss) - Sevilla (Spánn)

Villarreal (Spánn) - Leverkusen (Þýskaland)

Athletic Bilbao (Spánn) - Valencia (Spánn)

Liverpool (England) - Manchester United (England)

Sparta Prag (Tékkland) - Lazio (Ítalía)

Dortmund (Þýskaland) - Tottenham (England)

Fenerbahce (Tyrkland) - Braga (Portúgal)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×