Knattspyrnusamband Íslands býst við 622 milljóna hagnaði á árinu 2016 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. febrúar 2016 19:19 KSÍ fær mikla tekjur vegna þátttöku íslenska karlalandsliðsins á EM í Frakklandi 2016. Vísir/Vilhelm
Knattspyrnusamband Íslands hefur birt ársreikning sinn fyrir árið 2015 og þar kemur í ljós að rekstur KSÍ gekk mjög vel á síðasta ári. Hagnaður sambandsins í ár verður hinsvegar smávaxinn í samanburði við áætlaðan hagnað KSÍ ár árinu 2016. Hagnaður ársins 2015 var 156 milljónir króna eða tólf milljónum meira en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Áætlanir gerðu ráð fyrir 144 milljóna króna hagnaði. Að teknu tilliti til fjármagnsliða var hagnaður KSÍ 157 milljónir króna. Rekstrartekjur KSÍ á árinu 2015 námu 1.112 milljónum króna samanborið við 1.067 milljónir króna árið á undan. Hækkun rekstrartekna skýrist fyrst og fremst af auknu framlagi frá FIFA. Styrkir og framlög til aðildarfélaga námu á árinu 147 milljónum króna vegna sjónvarps- og markaðsréttinda, styrkja til barna- og unglingastarfs, leyfiskerfis og fleira og er í samræmi við það sem áætlanir gerðu ráð fyrir. Að teknu tilliti til styrkja og framlaga til aðildarfélaga var hagnaður KSÍ um 11 milljónir króna á árinu 2015. Eignir námu 581 milljón króna en þar af var handbært fé 152 milljónir. Eigið fé KSÍ var 221 milljón króna í árslok 2015. Á heimasíðu KSÍ má sjá bæði Ársreikning ársins 2015 sem og fjárhagsáætlun fyrir árið 2016 þar sem sambandið gerir ráð fyrir 622 milljóna hagnaði. Það munar um að sambandið er að fá 1725 milljónir í styrk og framlög.
EM 2016 í Frakklandi Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Tillögu Aþenu vantaði þrjú prósent til að vera tekin fyrir: Gengu út af KKÍ þinginu Körfubolti Uppgjörið: Ísland - Grikkland 33-21 | EM-sætið tryggt með glæsibrag Handbolti Kristinn Albertsson nýr formaður KKÍ Körfubolti Lærisveinar Alfreðs að stinga af Handbolti Aþena fann smugu á reglunum og mætti aftur á KKÍ þingið Körfubolti Sjónvarpsbannið í enska boltanum pirrar prinsinn Enski boltinn Svona var þing KKÍ Körfubolti Hafþór Júlíus keppir á móti í Síberíu Sport Leik lokið: Fram - Valur 27-26 | Fram hafði betur í toppslagnum Handbolti Stórefast um framtíð íslenska körfuboltans ef ekkert verði gert Körfubolti Fleiri fréttir Eyþór afgreiddi gömlu félagana í KR með sigurmarki í blálokin Ný átta sekúndna regla innleidd hér á landi Markvörður FH fer heim til Keflavíkur Lengsta undirbúningstímabilið að klárast Alex Freyr skrópaði á æfingu á Spáni Helena Ósk tryggði Valskonum sæti í undanúrslitunum Þór/KA konur áfram í undanúrslit eftir sigur í Árbænum Tveggja leikja bann fyrir glórulausa tæklingu Fyrirliði Vestra veðjaði á leiki í Bestu deildinni 55 ára Rúnar smurði hann í skeytin með bæði hægri og vinstri Valur fær manninn sem var efstur á óskalistanum Kveður Selfyssinga óvænt: „Það er synd að kveðja á þennan hátt“ Baðst afsökunar á tæklingunni í Garðabænum Skrautlegt mark, glæsimark og allt brjálað í sigri KR „Ljótasta tækling ársins komin í íslenska boltanum“ FH sækir liðsstyrk út fyrir landsteinana Trúir á Óla Kristjáns og Jesú Krist Í skýjunum með að hreppa Þórdísi Hrönn Níu mörk þegar KR vann ÍBV QPR vildi Þorra en Fram sagði nei Fylkismenn komust áfram á kostnað Íslandsmeistara Blika Valskonur með fullt hús og markatöluna 15-1 Thomsen mættur aftur í íslenska boltann Pedersen með tvö og Valsmenn í undanúrslit Auðun tekur við Þrótti Vogum „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Sjá meira