Menning

Tíu verkefni eiga möguleika á að hljóta Eyrarrósina

Atli Ísleifsson skrifar
Verksmiðjan Hjalteyri er eitt þeirra verkefna sem á möguleika á að hljóta Eyrarrósina 2016.
Verksmiðjan Hjalteyri er eitt þeirra verkefna sem á möguleika á að hljóta Eyrarrósina 2016. Mynd/Artfest
Búið er að birta lista yfir þau tíu verkefni sem eiga möguleika á að hljóta Eyrarrósina árið 2016.

Eyrarrósin er viðurkenning sem veitt er framúrskarandi menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunnar og beinir sjónum að og hvetur til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. Að verðlaununum standa Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík.

Þau verkefni sem eiga möguleika á að hljóta viðurkenninguna eru:

* Act Alone

* Að – þáttaröð N4

* Barokksmiðja Hólastiftis

* Eldheimar

* Ferskir vindar

* Northern Wave

* Reitir

* Rúllandi snjóbolti

* Sauðfjársetur á Ströndum

* Verksmiðjan á Hjalteyri

Í tilkynningu segir að í ár hafi borist mikill fjöldi umsókna en tilkynnt verður þann 2. febrúar næstkomandi hvaða þrjú verkefni hljóta tilnefningu til verðlaunanna. Eitt þeirra hlýtur að lokum Eyrarrósina, 1.650.000 krónur og flugferðir innanlands frá Flugfélagi Íslands en hin tvö verkefnin hljóta peningaverðlaun og flugferðir frá Flugfélagi Íslands.

Eyrarrósinverður afhent með viðhöfn um miðjan febrúar næstkomandi í Frystiklefanum að Rifi og mun Dorrit Moussaieff, forsetafrú og verndari Eyrarrósarinnar, afhenda verðlaunin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.