Viðar Örn stóðst læknisskoðun hjá Malmö Tómas Þór Þórðarson skrifar 27. janúar 2016 12:33 Viðar Örn í landsleik á móti Belgíu. vísir/afp
Viðar Örn Kjartansson, landsliðsframherji í fótbolta, stóðst læknisskoðun hjá sænska stórliðinu Malmö FF í morgun og verður kynntur sem nýr leikmaður félagsins síðar í dag, samkvæmt heimildum Vísis. Sænska blaðið Expressen greindi frá því á föstudaginn að Malmö lagði inn kauptilboð í Viðar sem kemur til Svíþjóðar frá kínverska liðinu Jiangsu Sainty. Hann skoraði níu mörk í 22 leikjum fyrir Sainty og varð bikarmeistari. Expressen sagði svo frá læknisskoðun Viðars í morgun. Hjá Malmö hittir Viðar Örn annan íslenska landsliðsmann, miðvörðinn Kára Árnason, sem kom til Malmö frá Rotherham á Englandi síðasta sumar. Malmö er eitt stærsta félagið á Norðurlöndum í dag og tók þátt í riðlakeppni Meistaradeildarinnar undanfarin tvö ár. Viðar Örn, sem er uppalinn á Selfossi, á að baki átta leiki með íslenska A-landsliðinu. Hann skoraði sitt fyrsta landsliðsmark á dögunum í 2-1 tapi gegn Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Malmö er að styrkja sig mikið fyrir næstu leiktíð, en í gær gekk það frá kaupum á danska landsliðsmanninum Anders Christiansen frá Chievo á Ítalíu.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Sjá meira