Skoðun

Náttúruverndargjald í stað náttúrupassa

Ólafur Hauksson skrifar

Flestir virðast á þeirri skoðun að réttlætanlegt sé að leggja einhvers konar gjald á ferðamenn til að kosta náttúruvernd á þeim stöðum sem verða fyrir mestum átroðningi þeirra. Ráðherra ferðamála hlýtur hins vegar að vera farin að átta sig á því að hugmyndin um innheimtu náttúrupassa í þeim tilgangi er vond og mun ekki ganga upp. Annars vegar vegna þess að stór hluti þjóðarinnar mun aldrei sætta sig við að þurfa að kaupa passa til að njóta náttúrunnar í eigin landi. Hins vegar vegna þess að innheimtuaðferðin er meingölluð.

Innheimtuaðferðin – sala náttúrupassa og eftirlit með kaupum hans – er flókin, kostnaðarsöm og fyrirfram óvinsæl. Miklu einfaldara og skilvirkara er að leggja þetta gjald á farmiða með skipum og flugvélum. Gjaldið mundi skila sér 100% og engan tilkostnað þyrfti við sölu eða óvinsælt eftirlit.

Innanlandsflugið þarf ekki að vera fyrirstaða

Ráðherra ferðamála hefur hins vegar slegið þessa hugmynd út af borðinu á þeim forsendum að þá þyrfti líka að leggja gjaldið á innanlandsflug, til að mæta reglum Evrópusambandsins.

Ríkið leggur nú þegar sérstakan 1.200 kr. skatt á hvern farþega í innanlandsflugi. Enginn slíkur skattur er lagður á farþega í millilandaflugi eða skipaferðum. Til að hlífa innanlandsfluginu við verðhækkun vegna náttúruverndargjalds er einfaldast að hafa það innifalið í þessum 1.200 kr. skatti. Farþegar í innanlandsflugi mundu því engan mun finna. Þar að auki heimilar Evrópusambandið undanþágu slíkrar gjaldtöku af flugvélum sem bera 20 farþega eða færri.

Skilar samt miklum tekjum

Náttúruverndargjald þarf ekki að vera hátt á hvern farþega ef það er lagt á alla sem ferðast með flugi og skipum. Á árinu 2013 fóru rúmlega 1,4 milljónir einstaklinga með skipum og flugvélum til og frá landinu og innanlands. Ef hver og einn hefði borgað 750 kr. í náttúruverndargjald við farmiðakaupin þá hefði það skilað rúmum milljarði króna í hreinar tekjur. Fyrir þann pening má svo sannarlega tryggja viðhald og vernd vinsælla ferðamannastaða.

Víða í Evrópu eru flugfarþegar skattlagðir. Sama gjald er lagt á farþega í innanlandsflugi og milli Evrópulanda. Í Bretlandi er þetta gjald tæplega 2.500 kr. og enn hærra þegar flogið er til annarra heimsálfa. Í Þýskalandi er þetta gjald rúmlega 1.000 kr.

Hóflegt náttúruverndargjald, t.d. undir 1.000 kr., hefur engin áhrif á ákvörðun fólks um að ferðast hingað til lands. Ef sú væri raunin, hvernig stendur þá á því að erlendum ferðamönnum hefur fjölgað jafn mikið og raun ber vitni á sama tíma og flugfargjöld hafa hækkað vegna hækkandi eldsneytisverðs?

Náttúrupassinn afturkallaður

Því fyrr sem ráðherra ferðamála afturkallar náttúrupassatillöguna, því fyrr verður hægt að ganga í nauðsynlega tekjuöflun með náttúruverndargjaldi til að tryggja að vinsælir en viðkvæmir ferðamannastaðir haldi aðdráttarafli sínu.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×