Fyrrum leikmaður FH seldur fyrir meira en 210 milljónir | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. desember 2015 09:00 Alexander Soderlund. Vísir/AFP
Norski landsliðsmaðurinn Alexander Söderlund spilar ekki áfram með norsku meisturum í Rosenborg því félagið hefur samþykkt að selja aðalframherja sinn til franska liðsins Saint-Etienne. Franski fréttamiðillinn RMC Sport segir frá því að Alexander Söderlund sé fyrsti leikmaðurinn sem Saint-Etienne muni kaupa þegar félagsskiptaglugginn opnast í byrjun janúar. Saint-Etienne mun borga um ein og hálfa milljón evra fyrir Alexander Söderlund sem gerir um 213 milljónir íslenskra króna. Hann var með samning við Rosenborg til ársins 2018. Alexander Söderlund lék á sínum tíma með FH-ingum sumarið 2009 en hann fór FH frá um haustið og gekk til liðs við ítalska liðið Lecco. Söderlund lék með Vard og Haugesund í Noregi áður en hann gekk til liðs við Rosenborg árið 2013. Söderlund skoraði 3 mörk í 18 leikjum í Pepsi-deildinni sumarið 2009, þar á meðal sigurmarkið í uppbótartíma á móti Breiðablik í 3. umferð deildarinnar. Hin tvö mörkin komu í 5-1 sigri á Stjörnunni í næsta leik á eftir og öll þrjú skoraði hann sem varamaður. Alexander Söderlund hækkaði markaskor sitt á hverju ári með Rosenborg, skoraði 3 mörk fyrsta tímabilið, þá 13 mörk og á síðasta tímabili skoraði hann 22 mörk í 27 leikjum og varð markakóngur norsku deildarinnar. Alexander Söderlund, sem er 28 ára gamall, gerir þriggja ára samning við franska liðið. Hér fyrir neðan er viðtal við hann síðan að hann kom til Íslands í sumar þegar Rosenborg mætti KR í forkeppni Evrópudeildarinnar.
Fótbolti Íslenski boltinn Fótbolti á Norðurlöndum Pepsi Max-deild karla Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Sjá meira