Fótbolti

Drátturinn í Evrópudeildinni: Klopp snýr aftur til Þýskalands og United mætir dönsku meisturunum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jürgen Klopp og félagar hjá Liverpool eru í pottinum.
Jürgen Klopp og félagar hjá Liverpool eru í pottinum. Vísir/Getty
Ensku stórliðin Liverpool og Manchester United fara til Þýskalands annars vegar og Danmerkur hins vegar í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í knattspyrnu.

Jürgen Klopp fer með strákana sína á kunnuglegar slóðir í Þýskalandi þar sem andstæðingurinn verður Augsburg. Louis van Gaal gæti komið við í Legolandi á leið sinni í leikinn við dönsku meistarana í Midtjylland á Jótlandi.

Alfreð Finnbogason skoraði sigurmark Olympiacos gegn Arsenal á Emirates í haust.Vísir/EPA
Alfreð Finnbogason og félagar hjá gríska liðinu Olympiacos mæta belgíska liðinu Anderlecht. Ragnar Sigurðsson og liðsmenn Krasnodar í Rússlandi mæta Spörtu frá Prag. Þá reyna Birkir Bjarnason og leikmenn Basel franska liðinu St-Étienne. 

Birkir fær þar með forsmekkinn af Stade Geoffroy-Guichard leikvanginum þar sem Ísland mætir Portúgal í F-riðli Evrópumóts karla næsta sumar.

Fylgst var með drættinum í beinni lýsingu hér á Vísi og má sjá dráttinn í heild sinni hér að neðan. Fyrr í dag varð ljóst að Arsenal mætir Barcelona í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu en dráttinn í heild má sjá hér.

Leikirnir fara fram fimmtudagana 18. og 25 febrúar. Að neðan má sjá liðin uppfærast jafnóðum. Fyrra liðið er á heimavelli. Feitletruðu liðin eru úr ensku úrvalsdeildinni og Íslendingalið.

Fenerbahce - Lokomotiv Moskva

Sion - Braga

Borussia Dortmund - Porto

Midtjylland - Manchester United

Villarreal - Napólí

Marseille - Athletic Bilbao

St-Étienne - Basel

Sporting CP - Bayer Leverkusen

Fiorentina - Tottenham

Anderlecht - Olympiacos

Sparta Prag - FC Krasnodar

Augsburg - Liverpool

Sevilla - Molde

Valencia - Rapid Vín

Galatasaray - Lazio

Shakhtar Donetsk - Schalke

Tvær undantekningar eru á dagsetningum leikja. Fenerbahce og Lokomotiv Moskva spila fyrri leikinn í Tyrklandi þriðjudaginn 16. febrúar og Sion sækir Braga heim í síðari leik liðanna miðvikudaginn 24. febrúar. 

Ástæðan fyrir þessum tilfæringum er sú að Galatasaray og Porto eiga leiki sömu kvöld.

Leikmaður Midtjylland er spenntur fyrir leiknum gegn United



Fleiri fréttir

Sjá meira


×