Avaldsnes ræður Evrópumeistara sem þjálfara Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. desember 2015 10:45 Bell tekur til starfa hjá Avaldsnes í janúar á næsta ári. vísir/getty
Norska liðið Avaldsnes, sem Hólmfríður Magnúsdóttir og Þórunn Helga Jónsdóttir, leika með hefur ráðið nýjan þjálfara. Sá heitir Colin Bell og er 54 ára gamall Englendingur. Bell hefur þjálfað í Þýskalandi frá árinu 1989, bæði karla- og kvennalið. Bell var síðast við stjórnvölinn hjá Frankfurt en undir hans stjórn varð liðið bikarmeistari 2014 og vann Meistaradeild Evrópu í vor. Frankfurt endaði í 3. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili. Avaldsnes endaði í 2. sæti í norsku úrvalsdeildinni í sumar og þá komst liðið alla leið í úrslitaleik bikarkeppninnar, þar sem það lá fyrir Lilleström. Avaldsnes tekur þátt í Meistaradeildinni í fyrsta sinn á næsta ári.Sjá einnig: Treyja Hólmfríðar seldist á 1,8 milljónir: Ég táraðist Hólmfríður átti frábært tímabil með Avaldsnes en hún skoraði níu mörk í 18 deildarleikjum og var valin sóknarmaður ársins í norsku deildinni. Þórunn Helga kom minna við sögu á síðasta tímabili en hún lék aðeins fimm deildarleiki af 22.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Sjá meira