Fótbolti

Átta mörk í ótrúlegum leik | Alfreð fékk ekkert að spila

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Roma skoraði fjögur mörk í röð en tókst samt ekki að fagna sigri í Þýskalandi í kvöld.
Roma skoraði fjögur mörk í röð en tókst samt ekki að fagna sigri í Þýskalandi í kvöld. Vísir/EPA
Leikur kvöldsins í Meistaradeildinni var átta marka jafntefli Bayer Leverkusen og Roma í Þýskalandi en bæði Zenit St. Petersburg og Porto eru í góðum málum í sínum riðlum eftir sigra á heimavelli.

Alfrepð Finnbogason fékk ekkert að koma við sögu þegar Olympiakos vann 1-0 útisigur á Dinamo Zagreb en það var Brown Ideye, maðurinn sem heldur Alfeð út úr liðinu sem skoraði eina mark leiksins.

Zenit St. Petersburg er með fullt hús í H-riðli eftir 3-1 sigur á Lyon og nú átta stigum meira en Lyon og Gent sem eru í tveimur neðstu sætum riðilsins.

Bæði Bayer Leverkusen og Roma komust tveimur mörkum yfir í ótrúlegum átta marka leik í Þýskalandi en liðin urðu á endanum að sættast á 4-4 jafntefli.

Javier Hernández kom Leverkusen í 2-0 á fyrstu 19. mínútum og fékk síðan tækifæri til að skora þrennuna í fyrri hálfleik.

Daniele De Rossi jafnaði metin með tveimur mörkum með átta mínútna kafla og staðan var 2-2 í hálfleik.

Í seinni hálfleiknum skoraði Miralem Pjanic frábært mark beint úr aukaspyrnu og varamaðurinn Iago Falque kom gestunum síðan í 2-0 á 73. mínútu eftir frábæran undirbúning Gervinho.

Þjóðverjarnir gáfust hinsvegar ekki upp og mörk frá Kevin Kampl og Admir Mehmedi með aðeins tveggja mínútna millibili tryggðu Leverkusen jafntefli í þessum magnaða fótboltaleik.

Porto vann 2-0 heimasigur á stigalausu liði Maccabi Tel Aviv og hefur nú tveggja stiga forskot á Dynamo Kiev og þriggja stiga forskot á Chelsea.

Barcelona er með þriggja stiga forskot í E-riðli eftir 2-0 sigur á útivelli á móti BATE Borisov á sama tíma og hin lið riðilsins, Bayer Leverkusen og Roma gerðu 4-4 jafntefli.



Meistaradeildin - Úrslit í leikjum kvöldsins:

E-riðill

BATE Borisov - Barcelona    0-2

0-1  Ivan Rakitic (48.), 0-2  Ivan Rakitic (65.),

Bayer Leverkusen - Roma    4-4

1-0 Javier Hernández, víti (4.), 2-0 Javier Hernández (19.), 2-1 Daniele De Rossi (30.),  2-2 Daniele De Rossi (38.), 2-3 Miralem Pjanic (54.), 2-4 Iago Falque (73.), 3-4 Kevin Kampl (84.), 4-4 Admir Mehmedi (86.),

F-riðill

Arsenal - Bayern München    2-0

1-0 Olivier Giroud (77.), 2-0 Mesut Özil (90.+4)

Dinamo Zagreb - Olympiakos    0-1

0-1 Brown Ideye (79.)

G-riðill

Dynamo Kiev - Chelsea    0-0

Porto - Maccabi Tel Aviv    2-0

1-0 Vincent Aboubakar (38.), 2-0 Yacine Brahimi (41.),



H-riðil

Valencia - Gent    2-1

1-0 Sofiane Feghouli (15.), 1-1 Thomas Foket (40.), 2-1 Sjálfsmark (72.)

Zenit St. Petersburg - Lyon    3-1

1-0 Artyom Dzyuba (3.), 1-1 Alexandre Lacazette (49.), 2-1 Hulk (57.), 3-1 Danny (83.).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×