Fótbolti

Grátlegt tap hjá Ragnari og félögum í Dortmund

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Úr leiknum í kvöld.
Úr leiknum í kvöld. vísir/getty
Ragnar Sigurðsson og félagar hans í rússneska liðinu Krasnodar voru hársbreidd frá því að ná í frábært stig gegn Dortmund á útivelli í fyrstu leikviku Evrópudeildarinnar í fótbolta í kvöld.

Pavel Mamayev kom Krasnodar yfir á 12. mínútu, en Matthias Ginter jafnaði metin, 1-1, fyrir Dortmund-liðið sem fer vel af stað á leiktíðinni undirstjórn Thomasar Tuchel.

Þegar allt stefndi í markalausan seinni hálfleik og jafntefli skoraði Suður-Kóreumaðurinn Joo-Ho Park sigurmark Dortmund á 90. mínútu, 2-1.

Tuchel er væntanlega í skýjunum með markaskorarann, en hann tók Park með sér til Dortmund frá Mainz.

Dramatískur sigur Dortmund í höfn en Ragnar og félagar eru stigalausir eftir einn leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×