Fótbolti

Dramatískur sigur Glódísar Perlu og félaga

Anton Ingi Leifsson skrifar
Glódís Perla gekk í raðir Eskilstuna fyrir tímabilið.
Glódís Perla gekk í raðir Eskilstuna fyrir tímabilið. vísir/heimasíða Eskilstuna
Glódís Perla Viggósdóttir spilaði allan leikinn í liði Eskilstuna United þegar liðið bar sigurorð af Umeå, 2-1, í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Gaelle Enganamouit kom Eskilstuna fyir á 24. mínútu, en Hanna Glas jafnaði metin fyrir Umeå á 63. mínútu.

Sofie Persson reyndist hetjan þegar hún skoraði sigurmarkið fimm mínútum fyrir leikslok og lokatölur 2-1 sigur Eskilstuna.

Eskilstuna er í þriðja sæti deildarinnar með 25 stig, fimm stigum á eftir toppliði Rosengård, en með jafn mörg stig og Linköping sem er í öðru sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×