Íslenski boltinn

Serbnesk landsliðskona til Vals

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Valskonur eru 4. sæti Pepsi-deildarinnar.
Valskonur eru 4. sæti Pepsi-deildarinnar. vísir/andri marinó
Serbneska landsliðskonan Marija Radojicic hefur samið við Val og leika með liðinu í Pepsi-deild kvenna.

Radojicic er 23 ára gamall framherji sem lék síðast með SV Neulengbach í Austurríki.

Radojicic varð í 2. sæti í deild og bikar með Neulengbach á síðasta tímabili en varð austurrískur meistari með liðinu árið 2014.

Sjá einnig: Valskonur leika á æfingasvæði félagsins

Radojicic er ætlað að fylla skarð Elínar Mettu Jensen sem er farin út til Bandaríkjanna þar sem hún er að hefja nám við Florida State University.

Elín Metta er næstmarkahæsti leikmaður Vals á tímabilinu með 10 mörk í 15 deildar- og bikarleikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×