Óskar Örn með mikilvægt útivallarmark í jafntefli KR Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júlí 2015 13:43 Óskar Örn Hauksson í leiknum í kvöld. Vísir/Luke Duffy
KR gerði 1-1 jafntefli á móti írska liðinu Cork City í kvöld í fyrri leik liðanna í forkeppni Evrópudeildar UEFA en leikurinn fór fram á Turner's Cross í Cork. Óskar Örn Hauksson jafnaði metin eftir tæplega hálftíma leik og þannig urðu lokatölur leiksins. KR eru því í ágætum málum fyrir seinni leikinn á KR-vellinum. KR-liðið byrjaði leikinn vel en það voru Írarnir sem skoruðu fyrsta markið. Alan Bennett, fyrirliði Cork City, skoraði markið eftir aukaspyrnu á 19. mínútu leiksins. Írarnir voru þó bara yfir í níu mínútur því KR-liðið nýtti sér líka fast leikatriði og jafnaði metin á 28. mínútu. Óskar Örn Hauksson hefur tekið upp á því að skora með skalla á þessu tímabil og gerði einn eitt skallamarkið í Cork í gær. Daninn Jacob Schoop tók þá hornspyrnu og Óskar Örn skoraði með föstum skalla. Fleiri mörk litu ekki dagsins ljós og KR-ingar fara heim með jafntefli og mikilvægt útivallarmark. Gary Martin kom inn á sem varamaður á 68. mínútu leiksins og spilaði sína fyrstu mínútur síðan að hann meiddist á móti Fylki 20. maí. KR missti Gonzalo Balbi meiddan af velli strax á 31. mínútu leiksins og tók Aron Bjarki Jósepsson sæti hans í liðinu. Leikmenn Cork City voru ekki sáttir með úrslitin og svo fauk í einn þeirra að hann réðst að eigin samherja og liðsfélagar hans þurfti að halda honum svo ekki færi illa.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Leikhlé Dags vakti athygli: „Til fjandans með þá alla“ Handbolti Snorri um áhyggjuefni: „Hægt að færa rök fyrir því að án hans værum við í veseni“ Handbolti Dagur heldur áfram: „Fannst ég endurfæddur“ Handbolti Gidsel bætti 30 ára gamalt met sem sett var á Íslandi Handbolti Pabbi Doncic: „Luka á þetta ekki skilið“ Körfubolti Hæddist að Haaland og nú vita allir hver hann er Enski boltinn Ósáttur Haaland eldri skýtur á Arsenal Enski boltinn Skagamenn kaupa Hauk frá Lille Fótbolti Rashford genginn í raðir Villa Fótbolti Glugginn lokast: Landar Arsenal framherja? Enski boltinn Fleiri fréttir Glugginn lokast: Landar Arsenal framherja? Ósáttur Haaland eldri skýtur á Arsenal Hæddist að Haaland og nú vita allir hver hann er Skagamenn kaupa Hauk frá Lille Rashford genginn í raðir Villa Rómverjar stöðvuðu sigurgöngu toppliðsins Stjarnan/Álftanes fagnaði sigri en Víkingur heldur titlinum Róbert Orri semur við Víkinga Orri skoraði annan leikinn í röð Skytturnar gengu frá Englandsmeisturunum Mateta skaut niður Man. United á Old Trafford Albert skoraði á móti gömlu félögunum Hákon fékk fyrst á sig sjálfsmark og svo var hann klobbaður Hákon byrjar sinn fyrsta leik í ensku deildinni Lewandowski tryggði Barcelona sigur Manchester United búið að kaupa Danann frá Lecce „Vertu auðmjúkur“ leikurinn, taka tvö Salah orðinn sá sjötti markahæsti í sögunni: „Erum á réttri leið“ United sækir annað ungstirni frá Arsenal Rashford við það að ganga í raðir Aston Villa Hákon lagði upp og Lille stökk upp um tvö sæti Madrídingar misstigu sig gegn fallbaráttuliði Espanyol Úlfarnir héldu út og fjarlægjast fallsvæðið Botnliðið vann mikilvægan sigur og Everton fór illa með Refina Kane með tvö mörk þegar Bæjarar sluppu með skrekkinn Hafdís Nína með þrennu í stórsigri á Færeyjum Salah sá um sjóðheita Bournemouth-menn Elanga og Wood með þrennur þegar Forest skoraði sjö mörk Ísak Bergmann með mark að hætti pabba síns Cecilía Rán hélt markinu hreinu í áttunda sinn Sjá meira