Fótbolti

Færeysku Víkingarnir héldu jöfnu í Noregi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hólmar Örn Eyjólfsson, leikmaður Rosenborg.
Hólmar Örn Eyjólfsson, leikmaður Rosenborg.
Rosenborg er komið áfram í aðra umferð forkeppni Evrópudeildar UEFA eftir 2-0 samanlagðan sigur á Víking frá Færeyjum.

KR verður næsti andstæðingur norska liðsins ef KR-ingar hafa betur í rimmu sinni gegn Cork City frá Írlandi. Þar er staðan jöfn, 1-1, eftir fyrri leikinn á Írlandi en liðin mætast í vesturbæ Reykjavíkur í kvöld.

Leikmenn Víkings frá Færeyjum mega þó vera sáttir við sitt eftir að hafa náð markalausu jafntefli í Noregi í kvöld. Sigur Rosenborg í fyrri leiknum var þó nóg til að fleyta liðinu áfram án teljandi vandræða.

Hólmar Örn Eyjólfsson spilaði allan leikinn í vörn Rosenborg í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×