Hættir Hiddink fyrir leikinn gegn Íslandi í haust? Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. júní 2015 15:15 Guus Hiddink og lið hans tapaði á Laugardalsvelli í haust. Vísir/Getty
Guus Hiddink, landsliðsþjálfari Hollands, viðurkennir í samtali við hollenska fjölmiðla að hann hafi íhugað að stíga til hliðar sem landsliðsþjálfari. Holland er í sama riðli og Ísland í undankeppni EM 2016 og liðin mætast í næsta leik sem fer fram í Amsterdam í byrjun september. Holland náði bronsverðlaunum á HM í Brasilíu síðastliðið sumar. Hiddink tók við liðinu eftir keppnina af Louis van Gaal og síðan þá hefur allt gengið á afturfótunum. Undir stjórn Hiddink tapaði Holland tveimur af fyrstu þremur leikjum sínum í undankeppninni - gegn Tékklandi og Íslandi - og er nú í þriðja sæti riðilsins, fimm stigum á eftir toppliði Íslands. Tékkar eru svo í öðru sæti með þrettán stig. Upphaflega áætlunin var sú að Hiddink stýrði liðinu í tvö ár, fram yfir EM 2016, og að aðstoðarþjálfarinn Danny Blind tæki svo við. En nú gæti verið að hann stígi fyrr til hliðar og að Blind gerist strax aðalþjálfari landsliðsins. „Ég er með ákveðna hugmynd um annað hlutverk fyrir mig,“ sagði Hiddink við hollenska miðla. „En áður en ég ákveð nokkuð þarf ég að ræða við fólkið í kringum mig.“
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Englendingar gætu verið með sjö lið í Meistaradeildinni á næstu leiktíð Enski boltinn „Að fá að gera þetta alla daga er draumur“ Handbolti Uppgjör: ÍR-Höttur 84-83 | ÍR-ingar björguðu sér á síðustu stundu Körfubolti „Ég er ánægður en á sama tíma er ég brjálaður“ Körfubolti Greint frá ósæmilegri hegðun í aðdraganda þings KKÍ Körfubolti Neymar snýr ekki aftur í brasilíska landsliðið Fótbolti Eyþór afgreiddi gömlu félagana í KR með sigurmarki í blálokin Íslenski boltinn Víkingskonur síðasta liðið í undanúrslitin Fótbolti „Vorum með bakið upp við vegg og urðum að vinna“ Sport Sara Björk og félagar hoppuðu upp í þriðja sætið Fótbolti Fleiri fréttir Englendingar gætu verið með sjö lið í Meistaradeildinni á næstu leiktíð Víkingskonur síðasta liðið í undanúrslitin Neymar snýr ekki aftur í brasilíska landsliðið Eyþór afgreiddi gömlu félagana í KR með sigurmarki í blálokin Sara Björk og félagar hoppuðu upp í þriðja sætið Liverpool liðin fengu stóru mánaðarverðlaunin í enska Blóðguð Glódís Perla fagnaði sigri á móti Sveindísi Ný átta sekúndna regla innleidd hér á landi Mourinho gerir grín að skáldhæfileikum eigin leikmanns og segir hann of þungan Næstu bikarmeistarar stórgræða á árangri Víkings Borga 50 milljónir fyrir 17 ára pjakk sem fær sjö ára samning Heimir leitar sátta: Vill bjór og spjall með Duff og Bradley Ánægður með fullkomna fyrirliðann en segir hann þurfa að treysta samherjunum Svona líta öll átta liða úrslitin í Evrópu út Rashford og 32 ára nýliði í fyrsta landsliðshópi Tuchels Sir Alex er enn að vinna titla Dorgu bað dómarann um að gefa United ekki víti Óttaðist að ánetjast svefntöflum Lærisveinar Mourinho komu til baka en töpuðu svo í vító Danskur fótboltamaður skiptir um landslið Tottenham afgreiddi Hollendingana í seinni leiknum Þrenna Bruno sendi Orra og félaga niðurlúta heim frá Old Trafford Albert skoraði og fagnaði í Íslendingaslagnum Rómverjar misstu mann af velli á elleftu mínútu og eru úr leik Markvörður FH fer heim til Keflavíkur Hneykslast á sóðaskap Real stjarnanna Hákon einn sá dýrasti og talinn kosta 6,7 milljarða Myndavél TNT Sports náði tvísnertingunni hjá Julián Alvarez Lengsta undirbúningstímabilið að klárast Alex Freyr skrópaði á æfingu á Spáni Sjá meira