Íslenski boltinn

365 og Sport TV í samstarf um beinar útsendingar frá Pepsi-deild kvenna

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Breiðablik og Stjarnan verða í beinni útsendingu í fyrstu tveimur umferðunum.
Breiðablik og Stjarnan verða í beinni útsendingu í fyrstu tveimur umferðunum. vísir/stefán
365 og íþróttavefsjónvarpsstöðin Sport TV eru komin í samstarf um beinar útsendingar frá leikjum í Pepsi-deild kvenna.

Sport TV hefur verið afar dugleg að sinna íslenskum íþróttaviðburðum og sýnt leiki í kvennaknattspyrnunni í nokkur ár við góðan orðstír.

Sýndur verður einn leikur í hverri umferð í Pepsi-deild kvenna á Vísi, en Stöð 2 Sport mun svo einnig sýna frá leikjum í deildinni.

Fyrsta beina útsendingin verður annað kvöld á Vísi þegar Íslands- og bikarmeistarar Stjörnunnar taka á móti nýliðum KR á Samsung-vellinum í Garðabæ. Leikurinn hefst klukkan 14.00.

Fyrstu leikirnir í beinni á Vísi:

Pepsi-deild kvenna:

Stjarnan - KR, fimmtudagur 14. maí kl. 14.00

Afturelding - Breiðablik, 19. maí kl. 19.15




Fleiri fréttir

Sjá meira


×