Fótbolti

Ítalskur úrslitaleikur í Evrópudeildinni?

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Rafa Benitez er stjóri Napoli.
Rafa Benitez er stjóri Napoli. Vísir/Getty
Ítölsku liðin tvö sem eftir eru í Evrópudeild UEFA drógust ekki saman í undanúrslit keppninnar en dregið var í dag.

Sevilla frá Spáni, ríkjandi meistarar í keppninni, mæta Fiorentina og þá drógst hitt ítalska liðið, Napoli, gegn Dnipro frá Úkraínu.

Ítölsk lið hafa mæst í úrslitaleik Evrópukeppni félagsliða en ekki eftir að keppnin var endurskírð árið 2009.

Undanúrslitaleikirnir fara fram 7. maí en úrslitaleikurinn á þjóðarleikvangi Pólverja í Varsjá þann 27. maí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×