Fótbolti

Dúndurbyrjun Rosenborg | Sigrar hjá Start og Viking

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hólmar Örn og félagar fara frábærlega af stað í norska boltanum.
Hólmar Örn og félagar fara frábærlega af stað í norska boltanum. vísir/getty
Hólmar Örn Eyjólfsson og félagar í Rosenborg hafa farið frábærlega af stað í norsku úrvalsdeildinni. Í fyrstu umferðinni vann liðið 5-0 sigur á Álasund og í dag fékk Haugesund að kenna á því.

Lokatölur 6-0, Rosenborg í vil en liðið í toppsæti deildarinnar með sex stig og markatöluna 11-0. Hólmar lék allan leikinn í miðri vörn Rosenborg.

Viking bar sigurorð af Tromsö á heimavelli, 3-1. Indriði Sigurðsson og Jón Daði Böðvarsson voru báðir í byrjunarliði Viking. Sá síðarnefndi fór af velli þegar 10 mínútur voru eftir af leiknum. Steinþór Freyr Þorsteinsson kom inn á sem varamaður á 67. mínútu en Björn Daníel Sverrisson er frá vegna meiðsla.

Guðmundur Kristjánsson sneri aftur á völlinn eftir meiðsli þegar Start vann 2-1 sigur á Sandefjord. Guðmundur, sem er fyrirliði Start, spilaði allan leikinn líkt og Matthías Vilhjálmsson. Ingvar Jónsson sat allan tímann á varamannabekknum.

Þá vann Odd 2-0 sigur á Stabæk.

Úrslit dagsins:

Álasund 1-1 Lilleström

Haugesund 0-6 Rosenborg

Odd 2-0 Stabæk

Start 2-1 Sandefjord

Viking 3-1 Tromsö




Fleiri fréttir

Sjá meira


×