Erlent

Skemmdir unnar á gröf föður Hillary

Atli Ísleifsson skrifar
Hillary Rodham Clinton tilkynnti opinberlega um forsetaframboð sitt um helgina.
Hillary Rodham Clinton tilkynnti opinberlega um forsetaframboð sitt um helgina. Vísir/AFP
Lögregla í Pennsylvaníu rannsakar nú skemmdarverk sem unnið var á legsteini föður Hillary Clinton.

Í frétt Scranton Times-Tribune segir að ábending hafi borist lögreglu í gær um að legsteini Hugh Rodham hafi verið velt. Steininum hefur nú verið komið upp á ný.

Gröf Hugh Rodham er í kirkjugarðinum við Washburn Street í borginni Scranton.

Lögregla segir málið grunsamlegt, sér í lagi þar sem það kemur upp skömmu eftir að Hillary Clinton greindi frá því að hún byði sig fram til að verða forsetaframbjóðandi Demókrata.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×