Fyrrum leikmaður Manchester City til Stjörnunnar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. apríl 2015 14:00 Gunnar Nielsen kemur til að verja mark Stjörnunnar í sumar. mynd/stjarnan
Íslandsmeistarar Stjörnunnar hafa samið við Gunnar Nielsen, landsliðsmarkmann Færeyja. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Stjörnunni. Gunnar samdi við Garðabæjarliðið út leiktíðina en hann kemur til að fylla skarð Ingvars Jónssonar sem hefur varið mark Stjörnunnar undanfarin ár. Eftir tímabilið í fyrra hélt Ingvar í víking og samdi við norska liðið Start. Stjörnumenn höfðu gefið það út að þeir ætluðu að treysta á Svein Sigurð Jóhannesson og Arnar Darra Pétursson til að fylla skarð Ingvars en nú er ljóst að af því verður ekki. Gunnar, sem er 28 ára, hefur farið víða á ferlinum en hann var m.a. á mála hjá Manchester City 2009-2012 og lék einn leik með liðinu í úrvalsdeildinni. Síðast lék hann með Motherwell í Skotlandi og var í leikmannahópi liðsins þegar það mætti Stjörnunni í forkeppni Evrópudeildarinnar síðasta sumar. Gunnar, sem hefur leikið 25 landsleiki fyrir Færeyjar, er væntanlegur til landsins á fimmtu- eða föstudag í næstu viku.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Valsmenn neituðu að veita viðtöl Körfubolti Hveragerði fær stimpilinn frá Mosó Íslenski boltinn „Ábyrgðin er mín“ Fótbolti Orri með tvennu á Spáni: „Fyrsta stóra kvöldið þitt“ Fótbolti Lélegasta lið sögunnar: „Augljóslega er þetta ömurlegt“ Sport Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Enski boltinn Óska eftir handtökum vegna herferðar gegn Vinicius Fótbolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu deild karla og málin gerð upp í Bestu mörkunum Sport „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Körfubolti KSÍ sækir um í Afrekssjóð ÍSÍ fyrir næsta ár Fótbolti Fleiri fréttir Vonbrigða tímabil Vals getur skorið úr um hvar titillinn endar Hveragerði fær stimpilinn frá Mosó KR upp um deild og Haukar tóku við bikarnum „Þetta er bara besta móment lífs míns“ Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn „Ég bara hágrét í leikslok“ „Þetta endar eins og þetta á að enda“ Uppgjörið: Víkingur - Valur 1-2 | Íslandsmeistararnir fá úrslitaleik á heimavelli Uppgjörið: Breiðablik - FH 4-2 | Breiðablik vann í markaleik og mætir Val í hreinum úrslitaleik Utan vallar: Ungt og leikur sér Selfoss fór með sigur af hólmi á Laugardalsvelli Fram fær liðsstyrk úr Breiðholti „Þetta er dýrmætur tími og maður finnur hvað þetta skiptir mann miklu máli“ Gísli Gottskálk verðlaunaður með nýjum samningi Hermann hættur með ÍBV Bestu guttarnir í Bestu deild karla Birkir á leið til Vals á nýjan leik Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Sjáðu glæsimörk táninga og Helga koma Víkingi á toppinn Heimir „hæstánægður með FH-liðið“ eftir 3-0 tap Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni „Draumur að spila fyrir uppeldisfélagið“ Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Óvíst hvort Tryggvi Hrafn verði meira með Val á leiktíðinni Óttast ekki bikarþynnku: „Alvöru sigurvegarar finna sér hvatningu“ Nablinn skellti sér á Kópavogsslaginn: „Leikurinn endar milljón tvö“ Sjá meira
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn