Fótbolti

Nýliðarnir skelltu Viking

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jón Daði og félagar byrja illa í norsku deildinni.
Jón Daði og félagar byrja illa í norsku deildinni. mynd/viking
Opnunarleikur norsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta fór fram í dag þar sem Íslendingaliðið Viking sótti Mjondalen heim.

Nýliðar Mjondalen gerðu sér lítið fyrir og unnu sanngjarnan 1-0 sigur en það var Sanel Kapidzic sem skoraði sigurmarkið eftir 63 mínútna leik.

Indriði Sigurðsson, Björn Daníel Sverrisson og Jón Daði Böðvarsson voru allir í byrjunarliði Viking en Steinþór Freyr Þorsteinsson sat allan tímann á varamannabekknum.

Björn Daníel fór meiddur af velli á 36. mínútu og þá var Jóni Daða skipt út af eftir 78 mínútna leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×