Íslenski boltinn

KR-ingar náðu bara jafntefli í snjónum á Selfossi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, formaður KR, tók þessa mynd af Gary Martin í leiknum í kvöld.
Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, formaður KR, tók þessa mynd af Gary Martin í leiknum í kvöld. Mynd/KSÍ/Gylfi Dalmann Aðalsteinsson
Pepsi-deildarlið KR gerði 1-1 jafntefli við 1. deildarlið Selfoss í kvöld í síðasta leik liðanna í A-riðli Lengjubikars karla í fótbolta.

Leikurinn fór fram við erfiðar aðstæður á gervigrasi þeirra Selfyssinga enda snjóaði mikið í dag og völlurinn var því orðinn fullur af snjó.

Svavar Berg Jóhannsson skoraði jöfnunarmark Selfyssinga á 52. mínútu eftir að Gary John Martin hafði komið KR í 1-0 á 37. mínútu.  

Gary Martin skoraði þrjú mörk í síðustu fjórum leikjum KR-inga í Lengjubikarnum.

KR vann 3 af 7 leikjum sínum og gerði 2 jafntefli. Liðið er í 3. sæti riðilsins en bæði Fjölnir og KA geta komist upp fyrir Vesturbæinga með sigri í lokaleikjum sínum.

Selfoss fékk 8 stig í riðlinum eða þremur stigum minna en KR.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×