Yahoo færir eignarhlut í Alibaba í sérstakt félag Aðalsteinn Kjartansson skrifar 27. janúar 2015 23:18 Marissa Mayer, forstjóri Yahoo. Vísir/AP
Yahoo hefur ákveðið að færa eignarhlut sinn í kínversku netversluninni Alibaba í sérstakt félag. Þannig er eignarhlutur Yahoo í Alibaba færður út úr félaginu sjálfu og settur beint í hendurnar á hluthöfum þess. Ákvörðunin er tekin á sama tíma og hluthafar í netrisanum hafa þrýst á að eignir félagsins í Asíu verði seldar til að greiða arð til hluthafa. Með því að fara frekar þessa leið nær Yahoo að koma hlutnum í Alibaba beint til hluthafa sem geta þá fengið arð frá versluninni og ekki þarf að greiða skatt af sölu hlutarins. Hlutabréfaverð í Yahoo hækkaði um 8 prósent eftir að tilkynnt var um ákvörðunina en 15,4 prósenta hlutur netfyrirtækisins í Alibaba hefur reynst afar góð og arðbær fjárfesting. Úr glærukynningu Yahoo. Vinstra megin er uppbygging fyrirtækisins eins og hún er í dag en hægra megin má sjá hvernig dæmið lítur út eftir breytingarnar.Yahoo
Mest lesið Olíufélögin hafi hætt við að elta Costco Neytendur Mælir ekki með „TikTok-sparnaðarleiðunum“ Neytendur Slitu kolefnisbindingarfyrirtækinu Running Tide Viðskipti innlent Þrír og hálfur milljarður króna fyrir Perluna Viðskipti innlent Sorpa undirbýr sig fyrir þjónustufall Neytendur Eigendum fjölgar hjá LOGOS Viðskipti innlent Mannauðsmál: „Enn of mikil tilhneiging til að taka ekki á málum“ Atvinnulíf Aldrei jafn margir ferðast með Icelandair Viðskipti innlent „Þá hugsuðu menn: Fínt, fáum konurnar í þessi störf“ Atvinnulíf Biden stöðvar japanska yfirtöku á US Steel Viðskipti erlent Fleiri fréttir Biden stöðvar japanska yfirtöku á US Steel Næstum allir nýir bílar í Noregi rafmagnsbílar Sjónvarpskóngur allur Gervigreindin sögð „bjargvættur“ jarðgassiðnaðarins Bölvað basl á Bond Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS Draga úr rafmyntarvæðingu til að fá lán frá AGS TikTok fær síðasta séns fyrir Hæstarétti Ræða samruna Honda og Nissan Bitcoin nær nýjum hæðum vegna Trumps Enn þynnri og samanbrjótanlegur iPhone Vesen á Messenger, Facebook og Instagram Verð á kaffi sögulega hátt Loka á aðgengi Bandaríkjamanna að mikilvægum málmum Dómari fellir aftur úr gildi 56 milljarða dala launapakka Musk Danska ríkið kaupir Kastrup Sjá meira