Fótbolti

Alfreð spilaði 60 mínútur í bikartapi

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Alfreð Finnbogason komst ekki á blað í kvöld.
Alfreð Finnbogason komst ekki á blað í kvöld. vísir/getty
Alfreð Finnbogason var í byrjunarliði Real Sociedad sem tapaði, 1-0, gegn Villareal á útivelli í fyrri leik liðanna í 16 liða úrslitum spænska Konungsbikarsins í kvöld.

Alfreð spilaði fyrsta klukkutímann í leiknum áður en honum var skipt af velli fyrir Imanol Agirretxe.

Eina mark leiksins skoraði Rússinn Denis Cheryshev fyrir heimamenn á 72. mínútu og hafa þeir eins marks forystu fyrir seinni leikinn sem fram fer í San Sebastián eftir viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×