Skoðun

Flókin staða í Írak

Ólafur Þ. Stephensen skrifar
Mikið óvissu- og upplausnarástand er nú í Írak. Öfgasamtökin ISIS hafa náð á sitt vald stórum landsvæðum í norðurhluta landsins og ráða meðal annars landamærastöðvum á mörkum Íraks og Sýrlands og Jórdaníu. ISIS segist berjast fyrir málstað súnní-múslíma, sem eru minnihlutahópur í Írak. Raunveruleg hætta er á að landið klofni með tilheyrandi ófriði, í heimshluta sem mátti ekki við meiri stríðsátökum.

Eftir að þessi átök hófust í Írak hafa margir orðið til að færa rök fyrir því að upplausnina í landinu megi rekja til ákvörðunar vestrænna ríkja, undir forystu Bandaríkjanna, um að ráðast inn í landið árið 2003 og steypa Saddam Hussein af stóli. Það er margt til í þeirri gagnrýni, en hún er þó ekki að öllu leyti réttmæt.

Innrásin var vissulega mistök og byggð á fölskum forsendum um gereyðingarvopn, sem Saddam átti ekki lengur. Það voru líka áreiðanlega slæm mistök að hreinsa jafnrækilega út úr stofnunum samfélagsins og gert var, þar á meðal hernum. Margir ISIS-liðar eru vel þjálfaðir fyrrverandi liðsmenn í her Saddams. Ekki fer heldur á milli mála að stjórnvöldum í Írak, undir forystu Núrís al Maliki forsætisráðherra, hefur mistekizt hrapallega að tryggja samstjórn allra þjóðernis- og trúarhópa í landinu, sem er forsenda fyrir því að hægt sé að halda þessu brothætta ríki saman.

Hins vegar virðist oft gleymast að Saddam hélt Írak saman með harðstjórn, kúgun og manndrápum. Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands og einn þeirra sem tóku ákvörðun um innrásina á sínum tíma, benti í grein í Financial Times um helgina á að mönnum yfirsæist gjarnan tvennt í umræðunni um orsakir núverandi ástand í landinu.

Annars vegar að ISIS hafi getað nýtt ringulreiðina í Sýrlandi til að skipuleggja sókn sína í Írak. Aðgerðaleysi Vesturlanda hafi að því leyti haft alvarlegar afleiðingar.

Hins vegar bendir Blair á að byltingarhreyfingin, sem kennd er við arabíska vorið, hefði fyrr eða síðar komið til Íraks. Svar Saddams við henni, hefði hann enn verið við völd, hefði væntanlega verið meira í stíl við viðbrögð Bashar al-Assads í Sýrlandi en Hosni Mubaraks í Egyptalandi. Blair heldur því þannig fram að jafnvel þótt engin innrás hefði verið gerð 2003 væri samt stórt vandamál við að glíma í Írak þessa dagana.

Bandaríkjamenn hafa ákveðið að senda 300 hernaðarráðgjafa til Íraks til að aðstoða stjórnarherinn við að verjast ISIS. Stjórn al-Malikis biður um loftárásir á sveitir samtakanna, en í ljósi sögunnar er afar vafasamt að stjórn Obamas Bandaríkjaforseta hafi nokkurn pólitískan stuðning til að ráðast aftur í hernaðaraðgerðir í Írak.

Staðan þar, rétt eins og í Sýrlandi, er skelfilega flókin og ekki auðvelt að sjá hvernig á að koma í veg fyrir að átökin magnist enn. Sem stendur er það rétt afstaða sem John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, setti fram á fundum með íröskum stjórnvöldum í gær, að skilyrða hvers kyns aðstoð Bandaríkjanna við að mynduð verði ný ríkisstjórn í landinu, þar sem meirihluti sjía deili raunverulega völdum með súnníum og Kúrdum.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×