Fótbolti

Wales náði í jafntefli í Belgíu

Marouane Fellaini, leikmaður Belgíu.
Marouane Fellaini, leikmaður Belgíu. vísir/getty
Belgar og Wales skildu jöfn í Belgíu í kvöld, en leikurinn var ekki mikið fyrir augað. Heimamenn í Belgíu fengu betri færi, en náðu ekki að skora.

Belgar sóttu meira, en gestirnir frá Wales beittu skyndisóknum og sættu sig við að fara frá Belgíu með stig sem kemur þeim á topp riðilsins.

Wales er að gera góða hluti í riðlinum, en þeir eru með átta stig á toppi riðilsins. Belgía er hins vegar einungis með fimm stig eftir leikina þrjá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×