Fótbolti

Skoti lést á Celtic Park í gær

Anton Ingi Leifsson skrifar
Úr leiknum í gær.
Úr leiknum í gær. Vísir/Getty
22 ára gamall stuðningsmaður Skotlands lést á leik Skotlands gegn Írlandi í gær, en hann féll niður tröppur á Celtic Park og lést.

Lögreglan í Skotlandi segir að atvikið hafi gerst nærri útgangi 33 og var maðurinn fluttur samstundis á nærliggjandi sjúkrahús þar sem hann lést síðar.

Lögreglan hefur hafið rannsókn á málinu.

Skotland vann leikinn með einu marki gegn engu, en það var Shaun Maloney sem skoraði sigurmarkið þegar stundarfjórðungur var til leiksloka.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×