Enski boltinn

Giroud tæpur fyrir leikinn gegn Besiktas

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Skoraði og fór meiddur útaf
Skoraði og fór meiddur útaf vísir/getty
Svo gæti farið að franski framherjinn Oliver Giroud missi af seinni leik enska úrvalsdeildarliðsins Arsenal og tyrkneska liðsins Besiktas í forkeppni Meistaradeildarinnar á miðvikudaginn vegna meiðsla.

Giroud kom inn á í hálfleik í 2-2 jafntefli gegn Everton í gær en hann tryggði Arsenal stig með jöfnunarmarkinu á síðustu mínútu leiksins.

Skömmu eftir markið haltraði Giroud af leikvelli og gæti misst af leiknum á Emirates á miðvikudaginn.

„Þetta er stór leikur á miðvikudaginn og vonandi nær hann að jafna sig,“ sagði Arsene Wenger við Sky Sports. „Hann tognaði á ökkla og þetta lítur ekki vel út.“

Arsenal og Besiktas skildu jöfn 0-0 í fyrri leiknum í Istanbul í síðustu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×