Fótbolti

Falcao ekki með hugann við Madrid

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Falcao fagnar marki sínu gegn Arsenal
Falcao fagnar marki sínu gegn Arsenal vísir/afp
Kólumbíski framherjinn Radamel Falcao hjá franska stórliðinu Monaco segist ekkert velta því fyrir sér þó hann sá sterklega orðaður við Evrópumeistara Real Madrid í sumar.

Falcao sló í gegn í Madrid, hjá Atletico, áður en hann gekk til liðs við Monaco fyrir ári síðan. Falcao var mikið meiddur síðasta vetur og missti af heimsmeistarakeppninni í Brasilíu í sumar vegna meiðsla.

Falcao hefur náð heilsu og skoraði sigurmark Monaco gegn Arsenal í æfingaleik í gær.

„Ég veit ekkert um áhuga Real Madrid. Ég hugsa ekkert um annað félag en Monaco í augnablikinu,“ sagði Falcao eftir leikinn í gær.

„Ég þarf að vinna af krafti fyrir Monaco og spila hvar og hvenær þjálfarinn þarfnast mín.“

Falcao er samningsbundinn Monaco fram á sumar 2018 eða þar til hann verður 32 ára gamall.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×