Fótbolti

Leiknismenn lentu 2-0 undir en unnu samt | Myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vísir/Arnþór
Leiknir úr Reykjavík steig skref nær Pepsi-deild karla í kvöld eftir 3-2 endurkomusigur á Haukum á Ásvöllum en Leiknir lenti 2-0 undir í upphafi leiksins.

Arnþór Birkisson, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, leit við á Ásvöllum í kvöld og náði þessum myndum hér fyrir ofan.

Leiknisliðið hefur þar með náð 36 stigum á toppi 1.deildar og hefur nú 11 stiga forskot á liðið í þriðja sætinu þegar aðeins sjö umferðir eru eftir.

Leiknismenn hafa nú sex af síðustu sjö leikjum sínum og ekki tapað deildarleik síðan 22. júní. Það er jafnframt eina tap liðsins í fyrstu fimmtán umferðunum og sigrarnir eru orðnir ellefu.

Haukar voru búnir að vinna tvo síðustu leiki sína með markatölunni 9-1 og þeir áttu draumabyrjun þegar Hilmar Trausti Arnarsson og Brynjar Benediktsson komu liðinu í 2-0 á fyrstu ellefu mínútum leiksins.

Það tók Leiknismenn aðeins sextán mínútur og snúa við blaðinu og breyta stöðunni úr 2-0 í 2-3. Mörkin skoruðu þeir Vigfús Arnar Jósepsson (17. mínúta), Ólafur Hrannar Kristjánsson (28. mínúta) og Kristján Páll Jónsson (33. mínúta).

Upplýsingar um markaskorara eru fengar frá úrslit.net.






Tengdar fréttir

Hjörtur með mikilvæg mörk fyrir Skagamenn í kvöld

Hjörtur Júlíus Hjartarson er búinn að finna skotskóna á ný og hann sá til þess að Skagamönnum lönduðu öllum þremur stigunum í kvöld eftir 3-1 heimasigur á hans gömlu félögum í Þrótti. Hjörtur Júlíus skoraði tvö af mörkum Skagamanna sem lentu undir snemma leiks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×