Fótbolti

Íslensku liðin byrja á heimavelli

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Fram er ríkjandi bikarmeistari.
Fram er ríkjandi bikarmeistari. Vísir/Anton
Þrjú íslensk lið voru í pottinum þegar dregið var í fyrstu umferð forkeppni Evrópudeildar UEFA í dag.

FH mætir Glenavon frá Norður-Írlandi en Stjörnumenn drógust gegn velska liðinu Bangor City. Þá munu bikarmeistarar Fram leika gegn eistneska liðinu JK Nomme Kalju.

Leikirnir fara fram 3. júlí og byrja öll íslensku liðin á heimavelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×