Enski boltinn

Liverpool bauð í Moreno

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Times, Sky Sports og fleiri fjölmiðlar í Englandi fullyrða að Liverpool hafi lagt fram tilboð í Alberto Moreno, vinstri bakvörð hjá Sevilla á Spáni.

Moreno er 21 árs gamall og í miklum metum hjá Brendan Rodgers, stjóra Liverpool. Hann á tvo landsleiki að baki með Spáni og er í 30 manna hópnum fyrir HM í Brasilíu.

Hann var lykilmaður í liði Sevilla í vetur en tilboð Liverpool er sagt nema sextán milljónum punda, um þremur milljörðum króna.

Talið er að Liverpool hafi boðið Sevilla að fá miðjumanninn Suso að láni í eitt ár í tilboði sínu en hann lék með Almeria í spænsku úrvalsdeildinni í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×