Fótbolti

Aron og félagar áfram í Evrópudeildinni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Viktor Elm, leikmaður AZ, í baráttunni í kvöld.
Viktor Elm, leikmaður AZ, í baráttunni í kvöld. Vísir/AFP
AZ Alkmaar hékk á markalausu jafntefli í Rússlandi og tryggði sér þar með sæti í fjórðungsúrslitum Evrópudeildar UEFA. AZ mætti Anzhi í Rússlandi í kvöld og tókst hvorugu liðinu að skora.

AZ vann fyrri leikinn í Hollandi, 1-0, með marki Arons Jóhannessonar úr vítaspyrnu. Það reyndist vera eina mark rimmunnar.

Aron var í byrjunarliði AZ og spilaði allan leikinn. Hann komst nálægt því að skora þegar gott skot utan teigs var varið af Mihail Kerzhakov, markverði Anzhi.

Rússneska liðið fékk nokkur tækifæri til að skora í kvöld en náði ekki að nýta sér þau. Þess má geta að Jóhann Berg Guðmundsson sat allan leikinn á varamannabekk AZ í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×