Fótbolti

AZ komst áfram í Evrópudeildinni

Aron spilaði í 75 mínútur í kvöld.
Aron spilaði í 75 mínútur í kvöld. Vísir/Getty
Íslendingaliðið AZ Alkmaar er komið í sextán liða úrslit Evrópudeildar UEFA eftir 1-1 jafntefli gegn Slovan Liberec í kvöld.

AZ vann fyrri leik liðanna ytra, 0-1, og stóð því vel að vígi. Hollenska liðið tók forystuna á 19. mínútu en Liberec jafnaði í síðari hálfleik. Lengra komst liðið ekki.

AZ fer því áfram í keppninni, 2-1, samanlagt.

Bæði Aron Jóhannsson og Jóhann Berg Guðmundsson voru í byrjunarliði AZ í kvöld. Jóhann lék allan leikinn en Aron fór af velli á 75. mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×