Formúla 1

Ekkert sak­næmt í slysi Schumacher

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Michael Schumacher.
Michael Schumacher. Vísir/Getty

Franskur saksóknari hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekkert refsivert hafi farið fram þegar Michael Schumacher slasaðist á skíðum í Meribel í desemberlok.



Saksóknarinn hefur lokað rannsókn málsins en hinn 45 ára gamli Þjóðverji liggur enn í dái eftir að hafa orðið fyrir slæmum höfuðmeiðslum í skíðabrekku í frönsku Ölpunum 29. desember síðastliðinn.



Í rannsókninni kom meðal annars í ljós að steinninn sem felldi Schumacher var í 10,4 metra fjarlægð frá steinum sem Schumacher lenti með höfuðið á. Báðir steinarnir voru síðan meira en fjóra metra utan brautar.



Michael Schumacher varð sjöfaldur heimsmeistari í formúlu eitt en hann hætti endanlega í formúlunni árið 2012.



Læknarnir hafa verið að reyna að vekja Michael Schumacher úr dáinu síðan 30. janúar síðastliðinn en samkvæmt síðustu fréttum þá er lítið að frétta af viðbrögðum frá Schumi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×