Harmageddon

Stjörnuspeki og stjörnufræði nánast það sama

Andri Þór Sturluson skrifar
Sigga Kling
Sigga Kling
Sigga Kling fann sér nýjan pabba eftir að maður á Facebook fannst hún svo lík ömmu sinni. Hún mætti í Harmageddon og ræddi um tæknina sem hún beitir, stjörnuspána sína sem er gífurlega vinsæl, hvað einkennir góðan miðil og það var mikið hlegið.

Sigga sagði aðeins frá því hvernig þetta gengur fyrir sig. Hún tengir sig við fólk, almættið og Alan Leo stjörnufræðing. Þetta er alls ekki einfalt, Sigga þarf mikið að leggja í þetta enda 77 þúsund íslendingar búnir að skoða nýjustu stjörnuspána síðan á sunnudaginn á Tíska.is

Hún spáði fyrir Frosta og Mána og gjörsamlega negldi þetta. Frosta vantar „korter í kæruleysi“ og Máni myndi auðvelda sér margt í lífinu ef hann héti bara Þorkell.

Viðtalið við Siggu er hér.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.