Harmageddon

Nýsjálenskir femínistar snúa vörn í sókn

Frosti Logason skrifar
Hópur laganema við Auckland Háskóla á Nýja Sjálandi tók sig nýverið til og gerði hressandi ádeilu á lag Robin Thicke, Blurred Lines sem gert hefur allt vitlaust á vefnum í sumar.

Í texta lagsins og myndbandi er hlutverkum kynjanna snúið rækilega við og veitir það áhorfendum þannig annað sjónarhorn á upprunalega myndbandið, sem mörgum þótti hlaðið kvenfyrirlitningu.

Myndband laganemanna hefur vakið þónokkra athygli en á mánudaginn síðasta var það tekið út af YouTube þar sem það var skilgreint sem kynferðislega óviðeigandi efni. Því var þó hleypt aftur á vefinn 24 tímum síðar.












×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.