Fótbolti

Ronaldo og Angerer eru þau bestu í heimi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo og Nadine Angerer með verðlaunin sín.
Cristiano Ronaldo og Nadine Angerer með verðlaunin sín. Mynd/AFP
Portúgalski framherjinn Cristiano Ronaldo og þýski markvörðurinn Nadine Angerer voru í kvöld kosin besta knattspyrnufólks heims í árlegu kjöri Alþjóðaknattspyrnusambandsins en að kjörinu standa fyrirliðar og þjálfarar landsliða heims ásamt útvöldum fjölmiðlamönnum.

Cristiano Ronaldo fékk Gullbolta FIFA, sem besti knattspyrnumaður heims hjá FIFA, en hann átti frábært ár með Real Madrid og portúgalska landsliðinu.

Cristiano Ronaldo endaði þar með fjögurra ára einokun Lionel Messi en Messi hafði fengið öll Gullboltann allt frá því að Ronaldo vann hann í fyrsta skiptið árið 2008.

Ronaldo hafði betur í baráttunni við þá Lionel Messi og Franck Ribery sem voru einnig tilnefndir að þessu sinn.

Ronaldo átti bágt með sig upp á sviðinu eftir að hann fékk verðlaunin og það var augljóst að þessi sigur skipti hann mjög miklu máli. Ronaldo hefur líka oftar en ekki á síðustu árum þurft að sætta sig við annað sæti á eftir Lionel Messi.

Nadine Angerer var fyrirliði þýska kvennalandsliðsins sem varð Evrópumeistari í Svíþjóð síðastas sumar en Angerer var kosin besti leikmaður Evrópumótsins. Angerer hafði betur í baráttunni við Mörtu og Abby Wambach sem voru einnig tilnefndar að þessu sinni.

Nadine Angerer varð meðal annars tvær vítaspyrnur í úrslitaleiknum og fékk aðeins á sig eitt mark alla keppnina þar af ekkert í útsláttarkeppninni.

Þjóðverjar unnu bæði þjálfaraverðlaunin. Jupp Heynckes, fyrrum þjálfari Bayern München, var kosinn þjálfari ársins hjá körlunum en hjá konum var Silvia Neid, þjálfari þýska kvennalandsliðsins, kosin þjálfari ársins.

Pele fékk sérstök heiðursverðlaun, Gullboltann sem hann fékk aldrei sem leikmaður því þá voru þessi verðlaun aðeins fyrir leikmenn í Evrópu. Pele felldi tár upp á sviði þegar allur salurinn klappaði fyrir honum.

Afganska knattspyrnusambandið fékk prúðmennskuverðlaun FIFA og Jacques Rogge, fyrrum forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar, fékk heiðursverðlaun forseta FIFA.

Svíinn Zlatan Ibrahimovic skoraði fallegasta mark ársins en markið umrædda skoraði hann reyndar á árinu 2012 í landsleik á móti Englendingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×