Körfubolti

Jón Arnór spilaði bara fyrstu fimm mínúturnar í tapi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Vísir/Anton
Jón Arnór Stefánsson var í byrjunarliði CAI Zaragoza þegar liðið tapaði með níu stigum á útivelli á móti Laboral Kutxa, 83-92, í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta.

Jón Arnór spilaði bara fyrstu fimm mínúturnar í leiknum en hann fór útaf þegar Laboral Kutxa var komið yfir í 21-7. Jón Arnór kom ekkert meira við sögu en vonandi hafa meiðslin ekki tekið sig upp hjá íslenska landsliðsmanninum.

Jón Arnór var þarna að spila sinn fyrsta deildarleik eftir að hann kom til baka eftir aðgerð á hné um miðjan desember.

Jón Arnór gaf eina stoðsendingu á þessum fimm mínútum og klikkaði á eina skoti sínu sem var þriggja stiga skot. Hann fékk einnig eina villu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×