Menning

Pörupiltar til Finnlands

Pörupiltar eru á leiðinni til Finnlands.
Pörupiltar eru á leiðinni til Finnlands.

Pörupiltar verða með uppistandið sitt Homo Erectus á leiklistarhátíðinni Pop Up Art House í leikhúsinu Diana Scenen í Helsinki þriðjudaginn 4. júní.

Uppistandið verður lokasýningin á leiklistarhátíðinni, sem leikhópurinn Blaue Frau stendur fyrir.

Pörupiltarnir Nonni, Dóri og Hemmi hafa notið vinsælda Þjóðleikhúskjallaranum sl. tvö ár með uppistandi sínu.

Þeir eru með nýtt uppistand í bígerð, Blómin og býflugurnar, sem verður sýnt hér á landi næsta haust.

Alexía Björg Jóhannesdóttir, María Pálsdóttir og Sólveig Guðmundsdóttir eru konurnar á bak við Pörupilta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.