Fótbolti

Vonbrigðin í fyrra hvöttu Bæjara til dáða

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nordicphotos/Getty
Það yrði stórslys ef Bayern München tækist ekki að tryggja sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu. Eftir að Börsungar voru dregnir til slátrunar 4-0 í Þýskalandi fyrir viku er líklega enginn sem reiknar með því að þeir spænsku eigi sér viðreisnar von. Fjögur mörk eru betra veganesti en nokkur Bæjari hefði getað látið sig dreyma um.

„Við vorum afar heppnir að tapa leiknum aðeins 4-0 því við litum út fyrir að vera áhugamenn,“ segir Mark van Bommel, fyrirliði Bayern München, eftir 4-0 sigur Barcelona á Bayern í fjórðungsúrslitum Meistaradeildar árið 2009. Þá fór Barcelona alla leið í úrslitin og lyfti titlinum eftir sigur á Manchester United. Börsungar þurfa að endurtaka leikinn frá því á Nývangi 2009 í kvöld en hungur og sjálfstraust leikmanna Bæjara gerir verkefnið erfitt viðfangs.

„Þegar þú upplifir úrslitaleik eins og okkar gegn Chelsea þá veistu hve illa getur farið,“ segir Jupp Heynckes, þjálfari Bæjara. Þeir þýsku töpuðu úrslitaleik keppninnar í fyrra á heimavelli í München eftir vítaspyrnukeppni. Liðið hafði töluverða yfirburði í leiknum en þegar upp var staðið voru leikmenn liðsins með silfurpening um hálsinn.

„Sum félög gefast upp en allir hjá Bayern brugðust jákvætt við tapinu. Við gerðum breytingar, fengum góða leikmenn og styrktum liðsandann,“ segir Heynckes sem getur stillt upp sínu sterkasta liði. Fimm leikmenn liðsins eru þó einu gulu spjaldi frá því að fara í leikbann og verður fróðlegt að sjá hvort Heynckes freistist til þess að hvíla einhverja.

Dagskipulagið hjá heimamönnum er skýrt. Liðið þarf að skora mörk en má um leið alls ekki fá á sig mark. Skori Bæjarar útivallarmark þurfa Börsungar að koma boltanum sex sinnum í net Bæjara.

„Við erum Barcelona og getum ekki gefist upp þótt staðan sé slæm. Takist ætlunarverkið ekki þurfum við að geta borið höfuðið hátt, berjast allt til loka svo stuðningsmennirnir geti verið stoltir,“ segir Tito Vilanova þjálfari Barcelona.

Leikur liðanna hefst klukkan 18.45 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport & HD.

Dortmund tryggði sér farseðilinn í úrslitaleikinn í Meistaradeildini í gærkvöldi. Það helsta úr leiknum má sjá hér.


Tengdar fréttir

Læsti sig inni á klósetti

Hans-Joachim Watzke, stjórnarformaður Dortmund, átti erfitt með að fylgjast með lokamínútunum á Bernabeu í Madríd í kvöld.

Meistaradeildarmörkin: Gul gleði í Madríd

Dramatíkin var allsráðandi þegar Real Madrid var hársbreidd frá því að snúa við vonlausri stöðu í undanúrslitaeinvíginu gegn Borussia Dortmund í Meistaradeild Evrópu í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×